...::VERTU ÚTI !!!::...

...::Jólakötturinn::...

04.09.2007 21:50:34 / Sævar

Hættur, farinn !!!

Já, það ku rétt vera.

Ég hef ákveðið að skella í lás hérna.

 

 

En mjög forvitið fólk getur þó kíkt á nýja athvarfið mitt sem er.....

 

http://bjaninn.bloggar.is/

 

 

 Þakka þeim er hlýddu hér.

 

 

 


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.09.2007 08:55:18 / Sævar

3.Sept

Jæja, það tilkynnist hjermeð opinberlega að sumarið er á leiðinni burt og haustið reynir að komast að.

Það þýðir bara eitt, að það er ekki seinna vænna að fara í að undirbúa jólin.  Það eru ekki nema rúmlega 3 mánuðir til jóla og því er vissara að hafa vaðið fyrir neðan sig.

En já, síðasta helgi var ágæt, var á Thorvaldsen á föstudag en á laugardag brugðum við undir okkur betri fætinum, ég setti brilljandín í það sem eftir er af hárinu, skvetti old spice á vangann og fór með konunni á dansiball...  eða næstumþví.

 Æj, ég nenni ekki meira.

Gleðilega vinnuviku.


» 7 hafa sagt sína skoðun

25.08.2007 19:54:14 / Sævar

Pælingar

Kannast einhver við orðtakið "Naflafíla" ?

 

Heyrði þetta um daginn hjá litlum frænda Ingu, held hann hafifundið naflafílu af brauðinu sínu.

Er einhver öðruvísi lykt af naflanum en öðrum stöðum líkamans, t.d handakrika, undir pungnum eða á milli rasskinnana ?

Einsog ég sagði, þá var þetta bara pæling.

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.08.2007 22:29:04 / Sævar

Þriðjudagur aftur, og strákkvikindið er pirrað !

Það tilkynnist hér með opinberlega að ég hyggst breyta áherslum í starfi mínu hjá mjólkursamsölunni.

Í stað þess að eyða deginum í að vinna og selja, einsog ég hef gert hingað til, þá hef ég ákveðið að skjóta upp herör gegn jógúrti í dós, svokölluðu óska jógúrti. Ég held í alvöru að nafnið á þessari svikulu vöru sé lymskufullur húmor og samsæri hjá yfirmönnum þessa fyrirtækis á árum áður, og eigi að skírskota í "ég óska að jógúrtið skvettist ekki framaní mig þegar ég opna þessa dós"

Ég er kominn með alveg upp í kok af þessum dósum, það er alveg sama hversu mörgum ég sturta í mig, alltaf þarf fyrsti skammturinn að sprautast í augað á mér með tilheyrandi sóðaskap. Oft hefur þetta pirrað mig, en áðan birtist kornkvikindið sem fyllti mælinn, er ég þurfti að skúra upp um 10% af dósinni úr gólfinu, því ég ætlaði að vera svaka sniðugur og snúa "opniflipanum" frá mér.

Nú skal ég finna brjálaða uppfinningamanninn sem fann þennan ósóma upp, sem og yfirmannsómyndina sem þamþykkti þetta, og taka allsvakalega í lurginn á þeim, sýna þeim hvar Davíð keypti ölið, henda þeim svo niðrí fjöru, til þess eins að finna þá í áðurnefndri fjöru !

 

Nú, svo var Megavika að ganga í garð og vill ég nota tækifærið og óska landsmönnum öllum gleðilegrar megaviku.

Hinsvegar er böggul sem fylgir skammrifi á þessari megaviku, en það eru þessar leiðinda auglýsingar á öldum ljósvakans.

Ég meina, viðtal við fólk sem býr fjarri allri siðmenningu og spurja hvort þeir hafi smakkað dómínós flatböku... halló...

Jæja, ég ætla nú ekki að svæfa ykkur með svona langri færslu.

Þar til næst, farið bara í ra***at fyrir að vera svona treg að kvitta... :)

 


» 9 hafa sagt sína skoðun

12.08.2007 19:33:43 / Sævar

Mahna mahna

Sigrún systir skellti á mig merkilegri spurningu í gær.

Hvaðan kemur þetta lag, Mahna mahna, du du du duru

Einhverra hluta vegna hefur maður aldrei spáð í því, en eitthvað í kollinum á mér tengdi þetta við prúðuleikarana.

Fyrir yngri lesendurna sem ekki þekkja prúðuleikarana, þá eru þeir fyrirmyndin af Sesamie Street og Búbbunum, nema bara að þeir voru skemmtilegir, það voru búbbarnir ekki,... búbbarnir ykkar.

Og fyrir ykkur sem ekki kveikið á hvaða lag um er rætt geta smellt á linkinn hér að neðan...

http://youtube.com/watch?v=_e5GMnitmQ0

 

Það var hann Piero Umilani sem gaf þetta út á plötu árið 1968 og náði þetta miklum vinsældum og var t.a.m leikið í þætti Ed´s Sullivan í Ameríkusveit árið ´69. Nánar tiltekið 30.Nóvember, af liðsmanni prúðuleikara sem fyrir tilviljun hét einmitt Mahna mahna...

Benny Hill notaði lagið í sketsum í sínum þætti, Grallararnir í "The Office" hafa tekið það, sem og margir aðrir á árunum ´80-´90. sem og Dr.Pepper sem notaði lagið til að markaðssetja Cherry vanilla Dr.Pepper..... ojjjj......

Þessvegna kemur á óvart að sigrún skuli ekki muna hvaðan þetta kemur, því hún var jú orðin þrítug eða eitthvað árið 1980.... :) hihi En bara fyrir hana, reddaði ég textanum að þessu lagi, og geta söngþyrstir nú loksins lært að syngja þetta almennilega.

Mahna Mahna
Do doo be-do-do
Mahna Mahna
Do do-do do
Mahna Mahna
Do doo be-do-do be-do-do be-do-do be-do-do-doodle do do do-doo do!

En svo er sumarfríinu mínu lokið, í dag er síðasti dagur fríins og á morgun byrja ég að vinna.....Snökt snökt.

 

Látum þetta duga í dag.

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

07.08.2007 11:47:21 / Sævar

Hvaða dagur ku vera í dag ?

Það er líklegast þriðjudagur.  Þið vitið, þetta er einsog með hann Lýð Oddson, Lottovinningshafa, hann er ekkert að spá í hvaða dagur er í dag, þetta er svipað með okkur sem erum í sumarfríi, við bara vöknum um hádegi, eldum humar í morgunmat og förum svo bara að sumarfríast eitthvað.

Um helgina skelltum við okkur á Flúðir og vorum þarna á tjaldstæðinu í snilldaryfirlæti, grilluðum í öll mál, lögðum okkur í sólinni og kíktum jú pínulítið á Útlagann í einn G & T...  eða tvo...

Nú jæja, það er víst assgoti nóg að gera, telja á sér tærnar, borða, telja panelspýturnar í loftinu, klappa kisu og skoða augnlokin að innan.

 Chao !


» 3 hafa sagt sína skoðun

02.08.2007 21:39:45 / Sævar

Verið í fötunum !!!

Nú eru snillingarnir í löggunni búnir að banna Geira greyinu að halda fyrirtækinu sínu gangandi.

Hér er mín skoðun:

Að banna þetta er eitt mesta rugl sem hægt er að bera fram á þessum síðustu tímum, þú getur farið á netið og fundið gróft klám á 2 mínútum, þú getur farið á einkamál.is og keypt þér vændi, þú getur farið á vídjóleigu og leigt þér bláa og þú getur farið niðrá Hressó og fundið ódýrt einnar nætur gaman.  En það er harðbannað samkvæmt lögum að setjast niður með viskí og vindil og horfa á konu sýna listir sínar á súlunni í rólegheitunum.

Áður var þetta lokað innandyra í iðnaðarhverfi í kópavogi, fjarri almenning sem fæstir eiga leið þarna um á þessum tíma sólarhrings.  Þann 1. júní færðist hluti af þessu útá götu í kjölfar reykingabanns, og nú fer Þetta á svartamarkað og í heimahús og verður hættulegra fyrir dansarana, OG ríkið missir skatttekjur.

Það er mín skoðun að vilji menn gera þetta á annað borð, þá ættu þeir að mega það, óháð hvort að ríkislögreglustjóri sé laminn af konunni sinni eða ekki.

 

Urg hvað þessi fyrirhyggja í stjórnvöldum er farin að fara í taugarnar á mér. Fyrst móðurverndunar tilfinningin hjá ríkisvaldinu er svona sterk, af hverju er þá ekkert gert við þessa ekkisens mótmælendur, tekið harðar á nauðgurum í stað þess að puðra upp öllu þessu púðri í Geira, sem er bara að reyna að reka fyrirtæki.

Fuss og svei. 


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.07.2007 22:37:44 / Sævar

Pæling...

Það er ansi magnað að glugga í gamlar söguskræður og skoða hvernig lífsbarátta mannkynsins hefur breyst á undangegnum öldum og árum.

Í byrjum gengum við bognir í baki og veiddum okkur til matar með kylfum, svo með reynslunni urðum við örlítið snjallari á meðan hver kynslóðin á fætur annari og fetaði sig áfram í tækninni.

Öflug veiðarfæri komu til sögunnar ásamt hjólinu, eldinum og öðru smálegu og nytsamlegu við veiðar og matargerð. En pæling mín þessu sinni snýst ekki um uppruna hins og þessa, heldur veiðaraðferðum okkar í aldanna rás.

Í gegnum tíðina höfum við notað kylfur, spjót, boga&örvar, gildrur, veiðistangir, net, sverð og ég veit ekki hvað og hvað, en hin síðari ár hafa veiðiaðferðir okkar breyst og orðið minna spennandi.

Nútíma veiðimaður fer á veiðistaðinn, læðist að bráðinni þarsem hún liggur dauð og varnarlaus ofaní frystikistum og kælum stórveiðisvæða á við Bónus, Hagkaup ofl. vopnaður plastkorti sem er svo lítið að varla er hægt að rota hamstur með því.

Ekkert spennandi við svoleiðis fæðuöflun, enda er ekkert skrítið að þjóðin sé að fitna smátt og smátt því ekki þarf að hafa fyrir neinu. Nú þykir fínt að stunda "Íþrótt" sem kölluð er GOLF og snýst um að koma fáránlega lítilli kúlu, ofaní kjánalega lítið gat, sem er alltof langt í burtu og nota til þess mjög óhentugt verkfæri og ekki nóg með að hreyfingin er lítil, heldur nota þessir ræflar BÍL til að koma sér á milli hola...

Hvað kemur næst ? Hlaupahjól í Enska boltanum ? Ég sé fyrir mér Bjarna Fel að lýsa leik..

"Já, Bekkham er með boltann og Rónaldó spyrnir sér hratt á hlaupahjólinu sínu, beint í hliðiná Bekkham og beyglar hjá honum framdekkið, Bekkham þarf að fara útaf og skipta um dekk og rónaldó fær sekt fyrir ógætilegann akstur"

Nú, svo gætum við altsvo átt von á trampólíni í hástökkinu, færiband á hlaupabrautinni, mótor á reiðhjól í tour de france, bara til að hjálpa þeim upp brekkur og kanski tröppur sem maður þarf ekki að labba upp... ænei, það er víst búið að finna upp rúllustigann...

Þetta var pæling vikunnar og nú er ég byrjaður í sumarfrí og er stefnan sett útí sveit á morgun... jibbííííí

Haldið ykkur fast í handriðið á rúllustiganum á leið ykkar í gegnum gleðinnar dyr þessa helgina.

Ekki viljum við að skóreimarnar ykkar festist.

Skál og góða helgi.


» 3 hafa sagt sína skoðun

24.07.2007 23:34:17 / Sævar

Þriðjudagskvöld

Helgin er svo leng´að líða

Hversu lengi má ég bíða

Fram á þriðjudagskvöld...

Múhahaha, fríið mitt er að byrja, loksins, og hvað gerist þá ? Norðanátt og væta. Alveg er þetta týpískt, svínið fer loksins í frí og þá skyndilega hættir besta sumarið síðan elstu menn muna.

En talandi um gamla klikkaða gaura.  Mikið svakalega fara þessir ekkisens mótmælendur í mínar hárfínu taugar sem eru þó furðu seigar því eg er nebblega að fara í frí sko... :)

Ég er farinn að ganga með litla beisboll kylfu á mér ef ég skyldi lenda í svona skrílslátum í þessu hyski, og ég get svo svarið það, ég myndi sveifla henni að þessu ruglropandi ræflum (í sjálfsvörn auðvitað )því mér finnst mér stafa ógn af þessum sígaunum.  

En nú styttist í nýju Simpsons myndina, en frumsýning hennar nálgast sem óð fluga og treilerarnir sem vaða nú um veraldarvefinn lofa allra bestu skemmtun sem hægt er að hafa í kvikmyndahúsi síðan E.T var sýnd í bíó.  Ég meina, "Spiderpig, spiderpig, he does all that að spiderpig does"  Þeir sem hafa séð þetta vita um hvað málið snýst.

 

Jæja, best að fara að lúlla.

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.07.2007 18:38:03 / Sævar

Nú eru hlutirnir aldeilis að gerast

Oss hefur borist til eyrna að hundkvikindið með Gremlins eyrun, hann Lúkas sé risinn upp frá dauðum og kominn heim til eiganda síns.

Kirkjunnar menn eru að vonum ánægðir með þetta kraftaverk og búist er við yfirlýsingu frá Páfagarði þess efnis að 23 júlí verði hér eftir nefndur dagur heilags lúkasar og verði löggildur frídagur, og kona ein í suður ameríku segist eiga kexköku með mynd af Lúkasi.

Þetta þykja sko fréttir, þessi múgæsingur í kringum eitt lítið hundkvikindi, sem var talið af og tugi þúsunda króna fóru í minningarathöfn um þetta dýr sem lítur út einsog , ja ég veit ekki, eyru með smá skrokk.

Frændi lúkasar

 

Þessar fréttir eru reyndar áfall fyrir Sonju ljóshærðu systur mína, sem var búinn að þurrka rykið af þráðlausa netinu sínu og ætlaði sér að handsama hundgreyið.

 

En jæja, skál að sinni.


» 3 hafa sagt sína skoðun

21.07.2007 20:52:51 / Sævar

Hó hó hó

Nú er allt að gerast hér í hamingjulandi.  Hann Guðmundur Feiti, betur þekktur sem Gummi Feiti er orðinn pabbi.   Jú þið lásuð rétt, í dag kom lítil Guðmundsdóttir útúr bumbunni á Silju eftir smá bið og heilsast víst öllum vel.

Núa, af mér telst það til fregna að ég er bara að vinna þessa helgi, en svo er líka kominn tími á að fara í frí.. Jeyyyyy loksins. 

Skál fyrir því. 


» 3 hafa sagt sína skoðun

16.07.2007 18:36:50 / Sævar

Húsið á Sléttunni

Jæja, það er komið að smá upprifjun á þessum líka viðbjóðslegu þáttum.

Í familíunni eru Charles Ingalls, Laura Ingalls, litla skottan, lék hún ekki síðar í Beverly Hills 90210 ?

Nei ég er bara að hrekkja ykkur. Helgin var nokkuð strembin, vorum bæði að vinna næturvaktir en gáfum okkur samt tíma til að kíkja uppá þingvelli þarsem systur mínar voru í útilegu og grilla aðeins.

Nú svo var víst reunion í gamla skólanum mínum á akureyri, gamlir bekkjarfélagar á sóðalegu fylleríi, en einsog allir vita að þá er ég ekki hrifinn af svoleiðis enda gallharður bindindismaður...

Neinei, var eiginlega búinn að gleyma þessu en sá að Halldóra hafði fundið mig hér og skammað mig fyrir skrópið, en hey, ég var bara mjög góður í að skrópa í þessum skóla um árið þannig að eitt skipti enn drepur mig varla :)

En heyrðu, ég er næstumþví búinn að gleyma aðalmálinu....

Helvítis mótmælendurnir.  Þessir fávitar þykjast vera að gera íbúum borgarinnar svaka greiða með því að stöðva hér umferð á Snorrabraut og atast í löggunni.

Ég vill að löggan fái rafbyssur til að lama þetta hyski og best hefði verið að fá slökkvibíl í bæinn um helgina og bleyta hressilega uppí þessum ösnum. Ég meina, þetta lið brýtur mörg lög, tefur umferð, keyrir bíl með kerru með fólki í yfir eina helstu umferðaræð bæjarins og verður svo alveg vitlaust ef löggan skiptir sér af því.   Senda flokk uppí mosfellsdal og lumbra á þessu liði.


» 8 hafa sagt sína skoðun

13.07.2007 09:21:21 / Sævar

Jíhaaaaa!!!

Nú á ég fullt af úrvals kartöflum.. damm dara damm, Bestar bragðast soðnar potti í dúmm dúrú dú

Gular rauðar, sumar á stærð við haauus !!..   Eða þannig sko.

Það er víst föstudagur, enn eina fjandans ferðina og getiði hvað ég verð að gera....

Trommuslátt...   durrruuuurrurrm tssss...  Vinna!

Jeiiii gaman. Og þið þarna sem kíkið hérna inn, farið að kvitta fyrir ykkur, það eru skráðar um 200 heimsóknir á dag, síðustu daga, og ef þið farið ekki að kvitta, þá neyðist ég til að setja hér inn gömul handrit af húsinu á sléttunni.  Muniði eftir þeim vibba ??  Helvítið hann Charles Ingalls þarna á hestvagninum sínum, Lára með flétturnar ig allir hinir sem enginn man eftir.

Vibbi

Svo var líka meiri viðbjóður á stöð2, ég man nú ekki á hvaða tíma, en Dr.Quinn vinnur allar leiðindakeppnir.

Ojjjj

 

Úff, ekki hrasa á leið ykkar um gleðinnar dyr elsku klaufabárðarnir mínir.

Skál.


» 6 hafa sagt sína skoðun

11.07.2007 14:33:02 / Sævar

Ja hérna

Mikið svakalega getur fólk nú verið brenglað og vitlaust !

Nú er allt að springa á vefnum. t.a.m barnaland.is og öðrum væluskjóðusíðum um atvikið fyrir utan Devitos aðfararnótt sunnudags.

Við þetta hvíta hyski vil ég segja..

Ég var þarna á leið úr vinnu, bláedrú og þetta fólk var með fúkyrði og stæla við lögguna sem aðeins bað um að fá þetta blessaða brunahanalok og láta þar við sitja, en strákkjáninn gerði sig líklegann að nota það sem vopn og því fór sem fór.

Kylfan var aldrei notuð og ekki eitt högg var látið vaða af hendi laganna varða. Hinsvegar var æsingurinn í fólkinu það mikill að ekki var við það tjónkað nema járna höfuðpaurinn og bíða eftir aðstoð, en stelpukjáninn öskrar á lögguna og reynir að kippa kylfunni úr slíðrinu hjá löggumann og nú er umræðan á barnaland þannig að útbelgdir leynilögreglumenn sem horfa alltof mikið á the Shield, hafi gengið í skrokk á gaurnum að tilefnislausu, og sveiflað kylfunum í alla viðstadda.

Fuss og svei !


» 3 hafa sagt sína skoðun

08.07.2007 15:57:27 / Sævar

Það er allt að gerast

Tók helgina á Thorvaldsen, alveg svaka gaman... ég talaði um það á bíladögum á akureyri að í bænum hefði meðalaldurinn verið 15 ára.. þar voru krakkar að eyða fermingarpeningunum sínum. En á Thorvaldsen er þessu öfugt farið, því þarna fer nefnilega fólk til að eyða ellilífeyrnum sínum.

En á leiðinni heim á sunnudagsmorgun kom ég við á Devitos og þar inni rakst ég á gamlan kunningja sem reyndist vera í löggunni, ómerktur á vakt.

Tókum smá tal saman um daginn og veginn þartil einhver illa slompaður ólánspési labbar inn með lok af brunahana, lögreglan vildi nú endilega spyrjast fyrir um þetta lok en félaginn brást ókvæða við og sýndi stæla og mótþróa við þessa ágætu laganna verði á fyrren varði varð allt vitlaust, öskrandi stelpur hringjandi í neyðarlínuna gargandi að "Löggan væri að berja kærastann út af engu".. alltaf jafn gaman að fylgjast með svona :) svo áður en ég gat rekið almennilega við, voru komnir 4 löggubílar og orðið assgoti heitt í kolunum þannig að ég forðaði mér bara inn með mína Devitos pitsu.

 

Kanski ég skelli mér bara í lögguna... hmmm ætla að hringja í Geir Jón og forvitnast um hvar ég finn umsóknareyðublað. Ætli ég fái byssu og verði svona einsog John McClaine í DieHard ? Og á mótorhjóli ?? hmmm Ja maður spyr sig.


» 3 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 7
Dagatal
febrúar - 2012
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829
FyrriNæsti